Uglan og Kisan
I
Uglan og Kisan fóru til sjós
Á árabát fallega grænum
Með hunang í nesti og peningafesti
geymda í sparibauk vænum.
Uglan leit upp þar sem stjarna björt skein
Og raulaði' á gítarinn lag
'Ó Kisan mín fríð! Ó ástin mín ein
Jafn falleg í gær og í dag
Í dag,
Í dag!
Jafn falleg í gær og í dag!'
II
'Ó tignaða ugla, fegurst fugla
Þinn fagra söng áfram þú syng
Ó gifstu mér þú! Ei meir bíðum nú:
En hvar getum við fundið hring? '
Þau sigldu' yfir sæinn um árið og daginn
uns komu' í land bongtrjáasefs
Þá heyrðu þau hrín, og þar stóð svín
Með hring í enda síns nefs,
Síns nefs,
Síns nefs,
Með hring í enda síns nefs!
III
'Ó svín, er til sölu, í skiptum fyrir' tölu
Hringurinn?' Hann játti því.
Þau tóku hann þá, og giftu sig hjá
Kalkúni höll sinni í
Í veislunni átu þau brúðhjónin kátu
sætindi og marsipankrans
Og hönd í hönd, á sjávarströnd
Í tunglskini stigu sinn dans
Sinn dans,
Sinn dans,
Í tunglskini stigu sinn dans!